Á síðasta ári lagði Þjóðskjalasafn Íslands inn umsókn hjá UNESCO þess efnis að fyrsta manntal tekið á Íslandi, árið 1703, yrði skráð á lista Sameinuðu þjóðanna yfir Minni heimsins (Memory of the World). Á þann lista komast einungis ritaðar menningarminjar, svo sem skjöl, sem hafa þýðingu fyrir allt mannkyn. Á umsóknina hefur verið fallist. Það eru stórkostleg tíðindi og kærkomin viðurkenning á sérstöðu og mikilvægi þessarar einstöku heimildar.
Á þessari vefsíðu eru textar og myndir sem varpa nánara ljósi á þessi tímamót í íslenskri menningarsögu.
Skjöl:
Myndefni:
Myndatextar:
Myndirnar eru af síðum úr manntalinu 1703 og sýna hluta af fólkstali fjögurra hreppa.
- Ytrihreppur (síðar Hrunamannahreppur) í Árnessýslu.
- Skógarstrandarhreppur í Snæfellsnessýslu.
- Borgarhreppur í Mýrasýslu,
- Loðmundarfjörður í Múlasýslu.