Velheppnuð Safnanótt í Þjóðskjalasafni

fimmtudagur, 13. febrúar 2014 - 13:45
  • Safnanótt 2014
    Safnanótt 2014

Það var líf og fjör á dagskrá Þjóðskjalasafns Íslands á Safnanótt föstudagskvöldið 7. febrúar sl. Um hundrað gestir komu og hlýddu á erindi, fóru í vasaljósaferðir í skjalageymslur og horfðu á brot úr sýningu Möguleikhússins á einleiknum Eldklerkurinn. Nokkrir þeirra tóku þátt í verðlaunagetraun sem fólst í því að skrifa upp textabrot eftir mynd af síðu úr skýrslu séra Jóns Steingrímssonar til Ólafs Stephensens amtmanns um eldsumbrotin í Skaftafellssýslu árið 1783. Þrír heppnir gestir hljóta viðurkenningu fyrir þátttökuna sem þeir fá sendar heim til sín á næstu dögum. Þeir eru:

  • Gunnar Karl Thoroddsen
  • Lilja Hrönn Hrannarsdóttir
  • Viktoría Halldórsdóttir

Þessum ágætu gestum og öðrum sem lögðu leið sína í Þjóðskjalasafn á Safnanótt þökkum við kærlega fyrir komuna.