Starfsmenn Þjóðskjalasafns á ferð í Skotlandi

föstudagur, 16. nóvember 2012 - 14:30
  • Starfsmenn ÞÍ skoða aðstöðu kollega sinna í General Register House
    Starfsmenn ÞÍ skoða aðstöðu kollega sinna í General Register House
  • Landsbókasafnið (National Library of Scotland) við George IV Bridge
    Landsbókasafnið (National Library of Scotland) við George IV Bridge
  • Gestirnir frá Íslandi hlýða á Martyn Wade landsbókavörð Skota
    Gestirnir frá Íslandi hlýða á Martyn Wade landsbókavörð Skota
  • Njörður Sigurðsson færir gjafir frá Þjóðskjalasafni Íslands
    Njörður Sigurðsson færir gjafir frá Þjóðskjalasafni Íslands
  • Þjóðskjalasafn Skotlands (General Register House) við Princes Street
    Þjóðskjalasafn Skotlands (General Register House) við Princes Street
  • Skjalahópur ræðir málin
    Skjalahópur ræðir málin
  • Upplýsingahópur kastar mæðinni á milli funda
    Upplýsingahópur kastar mæðinni á milli funda
  • Fögur hvelfing í General Register House
    Fögur hvelfing í General Register House
  • Gestgjafar okkar fóru á kostum
    Gestgjafar okkar fóru á kostum
  • Þau báru hitann og þungann af móttöku gestanna frá Íslandi
    Þau báru hitann og þungann af móttöku gestanna frá Íslandi

Sautján starfsmenn Þjóðskjalasafns Íslands dvöldu í Edinborg dagana 11. - 14. október og kynntu sér starfsemi Landsbókasafns og Þjóðskjalasafns Skotlands og skiptust á upplýsingum við starfssystkini sín þar ytra.
Fimmtudaginn 11. október heimsóttu starfsmenn Þjóðskjalasafns Landsbókasafn Skotlands (National Library of Scotland) og fræddust um starfsemi safnsins, skoðuðu húsakynni og sýningu á völdum íslenskum heimildum í eigu safnsins, þar á meðal var Jónsbókarhandrit. Einnig var sýnd starfsstöð safnsins sem sér um skönnun á kortum og bókum.
Daginn eftir var skoska þjóðskjalasafnið (National Records of Scotland) heimsótt. Þar fór fram kynning á safninu, safnkosti þess, stefnu og starfsemi og húsakynni við Princes Street voru sýnd. Síðan var íslensku gestunum skipt í tvo hópa og fékk annar hópurinn kynningu á opinberum skjölum og einkaskjölum í safninu á meðan hinum hópnum var kynntur aðgangur almennings að gögnum safnsins á stafrænu formi og miðlun þeirra um alnetið.
Á báðum stöðum var boðið upp á léttan hádegisverð og voru móttökur Skotanna frábærar í einu og öllu. Ferðin í heild var hin ánægjulegasta og héldu starfsmenn heim á leið stórum fróðari um starf starfssystkina sinna í Skotlandi.
Hér að neðan eru nokkrar myndir frá heimsókninni.