Reglur um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum til umsagnar

miðvikudagur, 27. nóvember 2019 - 12:45
  • Þjóðskjalasafn Íslands.
    Þjóðskjalasafn Íslands.

Þjóðskjalasafn Íslands auglýsir til umsagnar drög að reglum um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum afhendingarskyldra aðila. Tengil á drög að reglunum ásamt greinargerð er að finna hér fyrir neðan. Þjóðskjalasafn er framkvæmdaaðili opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar skv. 3. gr. laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn og skal m.a. setja reglur um skjalavörslu og skjalastjórn afhendingarskyldra aðila, sbr. 8. gr. sömu laga.

Mikilvægt er að meðferð, varðveisla og eyðing á tölvupóstum sé eftir ákveðnum ferlum og að tryggt sé að tölvupóstar sem varða mál sem eru til meðferðar hjá afhendingarskyldum aðilum og varða starfsemi þeirra séu skráðir og varðveittir á skipulegan hátt. Reglum um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum er ætlað að tryggja góða og vandaða meðferð á þeirri skjalategund sem tölvupóstar eru og að mikilvægar upplýsingar um athafnir afhendingarskyldra aðila varðveitist.

Frestur til að skila inn umsögn við regludrögin er til og með 3. janúar 2020. Umsagnir og fyrirspurnir skal senda á netfangið skjalavarsla@skjalasafn.is.

Reglur um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum afhendingarskyldra aðila.