Lokabindi heildarútgáfu á skjölum Landsnefndarinnar fyrri fagnað

mánudagur, 19. september 2022 - 14:30
  • Útgáfuhóf 6. bindis Landsnefndarinnar fyrri, lokaútgáfa
    Útgáfuhóf 6. bindis Landsnefndarinnar fyrri, lokaútgáfa
  • Landsnefndin fyrri 1.-6. bindi
    Landsnefndin fyrri 1.-6. bindi
  • Landsnefndarskjöl til sýnis
    Landsnefndarskjöl til sýnis
  • Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson
    Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson
  • Útgáfutilboð Landsnefndarinnar fyrri
    Útgáfutilboð Landsnefndarinnar fyrri
  • Anna Agnarsdóttir formaður stjórnarnefndar Þjóðskjalasafns
    Anna Agnarsdóttir formaður stjórnarnefndar Þjóðskjalasafns
  • Hrefna Róbertsdóttir Þjóðskjalavörður
    Hrefna Róbertsdóttir Þjóðskjalavörður
  • Ole Magnus Mølbak Andersen aðstoðarþjóðskjalavörður Ríkisskjalasafns Danmerkur
    Ole Magnus Mølbak Andersen aðstoðarþjóðskjalavörður Ríkisskjalasafns Danmerkur
  • Kveðja frá Augustinus Fonden frá Danmörku
    Kveðja frá Augustinus Fonden frá Danmörku
  • Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tekur við Landsnefndinni fyrri að gjöf
    Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands tekur við Landsnefndinni fyrri að gjöf
  • Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir ritstjóri tekur til máls
    Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir ritstjóri tekur til máls
  • Pétur Rasmussen þýðandi
    Pétur Rasmussen þýðandi
  • Helgi Skúli Kjartansson professor emeritus
    Helgi Skúli Kjartansson professor emeritus
  • Frá útgáfuhófi Landsnefndarinnar fyrri
    Frá útgáfuhófi Landsnefndarinnar fyrri
  • Guðrún Hildur Rosenkjær tekur til máls
    Guðrún Hildur Rosenkjær tekur til máls
  • Frá útgáfuhófi Landsnefndarinnar fyrri
    Frá útgáfuhófi Landsnefndarinnar fyrri
  • Kjartan Atli Ísleifsson fjallar um bændurnar í Eyjafirði
    Kjartan Atli Ísleifsson fjallar um bændurnar í Eyjafirði
  • Kolbeinn Sturla G. Heiðuson fjallar um vinnufólkið á Norðurlandi
    Kolbeinn Sturla G. Heiðuson fjallar um vinnufólkið á Norðurlandi
  • Guðmundur Jónsson fjallar um forðabúr og fæðuöryggi bænda
    Guðmundur Jónsson fjallar um forðabúr og fæðuöryggi bænda
  • Frá útgáfuhófi Landsnefndarinnar fyrri
    Frá útgáfuhófi Landsnefndarinnar fyrri

Fjölmenni lagði leið sína á Þjóðskjalasafn í síðustu viku þegar útgáfu sjötta og síðasta bindis í heildarútgáfu á skjölum Landsnefndarinnar fyrri 1770-1771 var fagnað á árlegum Rannsóknardegi safnsins.

Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Adam Grønholm staðgengill sendiherra Danmerkur á Íslandi tóku við fyrstu eintökunum af sjötta bindinu úr hendi Hrefnu Róbertsdóttur þjóðskjalavarðar undir lófataki viðstaddra. Ole Magnus Mølbak Andersen astoðarþjóðskjalavörður Ríkisskjalasafns Danmerkur flutti kveðju safnsins og þá flutti Anna Agnarsdóttir formaður stjórnarnefndar Þjóðskjalasafns einnig ávarp ásamt því sem Hrefna kynnti heimildarútgáfuna fyrir gestum. Kveðja var einnig flutt frá Augustinusarsjóðnum í Danmörku.

Eftir setningarathöfn voru fluttir átta fyrirlestrar sem byggðir voru á rannsóknum á skjölum Landsnefndarinnar. Erindi fluttu þau Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir ritstjóri landsnefndarútgáfunnar, Pétur Rasmussen þýðandi, Helgi Skúli Kjartansson prófessor emeritus, Guðrún Hildur Rosenkjær sagnfræðingur og klæðskeri, Christian Folke Ax safnvörður við Þjóðminjasafn Danmerkur, Kjartan Atli Ísleifsson sagnfræðingur, Kolbeinn Sturla G. Heiðarsson sagnfræðingur og Guðmundur Jónsson prófessor.

Skjöl Landsnefndarinnar gefa einstaka innsýn inn í íslenskt samfélag á seinni hluta 18. aldar. Landsnefndin fyrri var þriggja manna nefnd á vegum konungs sem ferðaðist um Ísland í eitt og hálft ár og safnaði upplýsingum um aðstæður í samfélaginu. Í skjalasafni nefndarinnar eru bréf frá almenningi, prestum, sýslumönnum og öðrum embættismönnum auk greinargerða og margvíslegra gagna frá nefndarmönnum sjálfum. Með þessari útgáfu eru skjölin orðin mun aðgengilegri til rannsókna á sögu átjándu aldarinnar.

Verkefnið var styrkt af Rannís og Augustinusarsjóðnum danska og var unnið í samstarfi Þjóðskjalasafns Íslands, Þjóðskjalasafns Danmerkur og Sögufélags. Ritstjórar útgáfunnar eru Hrefna Róbertsdóttir og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir.