Evrópskt samstarf

fimmtudagur, 12. október 2023 - 15:15
  • Fulltrúar á fundi EAG í Madrid 5. október 2023.
    Fulltrúar á fundi EAG í Madrid 5. október 2023.
  • Frá fundi EAG 5. október 2023.
    Frá fundi EAG 5. október 2023.
  • Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður flytur erindi á fundi EBNA 6. október 2023.
    Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður flytur erindi á fundi EBNA 6. október 2023.

Dagana 5.-6. október fóru fram fundir þjóðskjalasafna Evrópu í Madrid sem Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður og Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður sóttu. Um var að ræða fundi European Archives Group (EAG) sem er samstarfsvettvangur skjalasafna á vegum Evrópuráðsins, European Board of National Archivists (EBNA) sem er samstarfsvettvangur evrópskra þjóðskjalavarða og Archives Portal Europe Foundation (APEF) sem er samstarfsverkefni skjalasafna í fleiri en 30 Evrópulöndum um rekstur sameiginlegrar skjalaskrár. Á fundi EAG var m.a. rætt um notkun gervigreindar í skjalasöfnum og um hlutverk skjalasafna í samfélaginu. Meginefni EBNA fundarins voru skjalakröfur og sameiginlegur menningararfur og flutti Njörður Sigurðsson, aðstoðarþjóðskjalavörður, erindi um verkefni sérfræðihóps Alþjóða skjalaráðsins sem hann stýrir um efnið. Á fundi APEF var rætt um stefnu verkefnisins sem hefur verið í mótun og þar kom einnig fram að Þjóðskjalasafn Íslands hefði nýlega orðið fullur meðlimur í verkefninu en það hefur hingað til aðeins lagt til efni í skjalaskrána. 

Fundir sem þessir eru tvisvar á ári og eru gestgjafar hverju sinni það Evrópuríki sem fer með forsetavald Evrópusambandsins. Fundirnir eru mikilvægur vettvangur til að ræða sameiginleg mál skjalasafna í Evrópu og vinna að sameiginlegum verkefnum.