Um safnið

Þjóðskjalasafn er stærsta safn frumheimilda um sögu íslensku þjóðarinnar og þróun byggðar og mannlífs í landinu og er þess vegna sá grunnur sem rannsóknir, stjórnsýsla og mannréttindi hér á landi byggja á. Þjóðskjalasafn er skjalasafn allrar þjóðarinnar og hefur almenningur aðgang að safninu, bæði á vef þess og á lestrarsal.

Hér á vefnum er hægt að fræðast meira um Þjóðskjalasafn Íslands, lagaumhverfi þess, sögu, markmið, starfsemi og stjórn.