Norræn málstofa um varðveislu og grisjun

laugardagur, 1. október 2016 - 10:45
  • Þátttakendur í norræni málstofu um varðveislu og grisjun skjala
    Þátttakendur í norræni málstofu um varðveislu og grisjun skjala
  • Eiríkur G. Guðmundsson, þjóðskjalavörður, setur norræna málstofu um varðveislu og grisjun skjala
    Eiríkur G. Guðmundsson, þjóðskjalavörður, setur norræna málstofu um varðveislu og grisjun skjala
  • Lone Liljengren frá Ríkisskjalasafni Danmerkur flytur erindi um heildræna sýn á varðveislu opinberra skjalasafna og einkaskjalasafna
    Lone Liljengren frá Ríkisskjalasafni Danmerkur flytur erindi um heildræna sýn á varðveislu opinberra skjalasafna og einkaskjalasafna

Þann 26. – 27. september sl. var haldin í Þjóðskjalasafni Íslands norræn málstofa um varðveislu og grisjun skjala. Málstofan er hluti af norrænum skjalasafnsskóla (Nordisk Arkivakademi) sem er samstarfsverkefni þjóðskjalasafna Norðurlandanna. Að þessu sinni var sjónum beint að varðveislu og grisjun í skjalasöfnum.

Málstofuna sóttu 14 starfsmenn ríkisskjalasafna Noregs, Danmerkur, Svíþjóðar og Finnlands auk starfsmanna Þjóðskjalasafns Íslands. Flutt voru erindi um lagaumhverfi og stöðu varðveislumála á Norðurlöndunum, um eyðingu skjala í rafrænum gagnakerfum og um sérstök verkefni sem skjalasöfnin standa að um varðveislu og grisjun.