Námskeið í skjalavörslu og skjalastjórn veturinn 2023-2024

fimmtudagur, 12. október 2023 - 14:45
  • Skjalageymslur ÞÍ
    Skjalageymslur ÞÍ

Þjóðskjalasafn Íslands mun bjóða upp á röð námskeiða í vetur eins og venja hefur verið undanfarin ár. Námskeiðin verða kennd í gegnum fjarfundarbúnaðinn Teams og eru þeim sem vilja sitja námskeiðin að kostnaðarlausu en nauðsynlegt er að skrá sig. Þátttakendur fá síðar tengil á námskeiðið þegar nær dregur námskeiðinu.

Á vef Þjóðskjalasafns Íslands er að finna yfirlit um námskeið vetrarins og þar hægt er að skrá sig á námskeiðin. 

Dagskrá vetrarins:

17.10.2023, kl. 10-11 Skráning mála og málsgagna.
24.10.2023, kl. 10-11 Frágangur, skráning og afhending pappírsskjala.
31.10.2023, kl. 10-11 Er röð og regla á málasafninu? Gerð málalykla.
7.11.2023, kl. 10-11 Þarf að bæta skjalavörslu og skjalastjórn? Átak í skjalavörslu.
14.11.2023, kl. 10-11 Gerð skjalavistunaráætlunar. Við verðum að hafa yfirsýn.
21.11.2023, kl. 10-11 Tilkynningar á rafrænum gagnasöfnum.
28.11.2023, kl. 10-11 Hverju má henda? Um grisjun skjala.
9.1.2024, kl. 10-11 Hvað á að gera við tölvupóstinn? Um varðveislu og eyðingu á tölvupósti.
16.1.2024, kl. 10-11 Sameining afhendingarskyldra aðila og tilfærsla verkefna: nokkur góð ráð.
23.1.2024, kl. 10-11 Afhendingar úr rafrænum gagnasöfnum.
6.2.2024, kl. 10-11 Undirbúningur og gerð vörsluútgáfu.
13.2.2024, kl. 10-11 Innra eftirlit í rafrænum gagnasöfnum.