Lífsblómið - fullveldi Íslands í 100 ár – Sýning í Listasafni Íslands við Fríkirkjuveg

fimmtudagur, 20. september 2018 - 15:15
  • Lífsblómið - fullveldi Íslands í 100 ár.
    Lífsblómið - fullveldi Íslands í 100 ár.

Sýningin Lífsblómið fjallar um fullveldi Íslands í 100 ár. Titillinn er sóttur í skáldsögu Halldórs Laxness Sjálfstætt fólk, sem gerist á þeim tíma er Ísland varð fullvalda ríki. Rétt eins og þetta þekkta bókmenntaverk fjallar Lífsblómið um hina djúpu þrá eftir sjálfstæði. Hún fjallar einnig um það hversu dýrmætt en um leið viðkvæmt fullveldið er. Í hundrað ára sögu fullveldisins hafa ýmsar ógnir steðjað að og varða þær bæði fjárhagslegt sjálfstæði þjóðarinnar, verndun náttúrunnar og þátttöku og ábyrgð í alþjóðlegu samstarfi. Fullveldið er ekki sjálfgefið og því þurfum við að hlúa vel að því. Rétt eins og lítil en harðgerð jurt þarf fullveldið á næringu að halda og þessi næring felst meðal annars í því að skiptast á skoðunum og deila heiminum með öðrum.

Að sýningunni standa Stofnun Árna Magnússonar í íslenskum fræðum, Þjóðskjalasafn Íslands og Listasafn Íslands. Handrit, skjöl og myndlistaverk frá þessum stofnunum mynda kjarnann í sýningunni. Auk þess hafa önnur söfn og stofnanir, sem og einkaaðilar, bæði hér á landi og í Danmörku, lánað verk á sýninguna. Myndlistin ljær umræðunni um ýmis átakamál á fullveldistímanum rödd og ýmsar sögulegar heimildir veita okkur aðgang að hugsun og lífi þeirra sem horfin eru á braut. Í hjarta sýningarinnar er að finna handrit og mikilvæg skjöl er varða íslenska menningu og snerta sjálfsmynd þjóðarinnar, sjálfstæðisbaráttuna og fullveldi Íslands.

Sýningarstjóri er Sigrún Alba Sigurðardóttir.
Sýningin er opin alla daga frá klukkan 10-17.