Pappírslaus skjalavarsla. Tilkynning og samþykkt rafrænna gagnakerfa

þriðjudagur, 20. mars 2018 - 9:00
Heiti námskeiðs: Pappírslaus skjalavarsla. Tilkynning og samþykkt rafrænna gagnakerfa
Leiðbeinendur: S. Andrea Ásgeirsdóttir, Garðar Kristinsson
Dagsetning: 20. mars 2018
Tími: 09:00-11:30
Staðsetning: Laugavegur 162, 3. hæð (gengið inn úr porti)
Hámarksfjöldi: 30
Námskeiðsgjald: 7.700 kr
Fyrir hverja: Skjalastjóra, umsjónarmenn skjalasafna og aðra starfsmenn skjalavörslu, umsjónarmenn tölvukerfa hjá stofnunum ríkisins og sveitarfélagum sem eru ekki aðilar að héraðsskjalasafni (Árneshreppur, Eyja- og Miklaholtshreppur, Garðabær, Grindavíkurbær, Grundarfjarðarbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Helgafellssveit, Kaldrananeshreppur, Kjósarhreppur, Reykhólahreppur, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Seltjarnarneskaupstaður, Snæfellsbær, Strandabyggð, Stykkishólmsbær, Sveitarfélagið Álftanes, Sveitarfélagið Garður, Sveitarfélagið Vogar, Tálknafjarðarhreppur, Vesturbyggð).
Námskeiðslýsing: Notuð verður spegluð kennsla á námskeiðinu þar sem þátttakendur eiga að horfa á fyrirlesturinn á YouTube síðu safnsins og mæta síðan og geta rætt um viðfangsefnið og vandamál sem koma upp. Horfðu á myndbandið Pappírslaus skjalavarsla. Tilkynning og samþykkt rafrænna gagnakerfa.
Á námskeiðinu er farið yfir hvernig skuli tilkynna rafræn gagnakerfi til Þjóðskjalasafns Íslands fyrir þá aðila sem ætla að varðveita gögn sín á rafrænu formi. Farið er yfir ferlið við tilkynningu á rafrænu kerfi, eyðublöð sem skal og nota og þau fylgiskjöl sem þurfa að fylgja tilkynningunum.
Lesefni: Lesefni er reglur og leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Íslands sem er aðgengilegt á vef safnsins:
Skráning: Skráðu þig á námskeiðið.