Reglur um skjalavörslu sveitarfélaga
Þjóðskjalasafn Íslands setti reglur um skjalavörslu afhendingarskyldra aðila árin 2010-2014 skv. 4. gr. laga nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands. Lög um Þjóðskjalasafn hafa verið felld úr gildi og ný lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn tekið við. Reglur settar skv. eldri lögum halda engu að síður gildi sínu. Nýjar reglur Þjóðskjalasafns eru settar með vísan í 1. tl. 8. gr. laga um opinber skjalasöfn. Öllum skjalamyndurum sveitarfélaga, sbr. 1. og 2. mgr. 14. gr. laga um opinber skjalasöfn er skylt að fylgja þessum reglum.
Leiðbeiningar um skjalavörslu sveitarfélaga
Eyðublöð
Rafræn skjalavarsla