Stefna þessi, forvarnir og viðbragðsáætlun er sett í samræmi við 38. gr. laga nr. 46/1980 um aðbúnað, hollustuhætti og öryggi á vinnustöðum og reglugerð nr. 1009/2015 um aðgerðir gegn einelti, kynferðislegri áreitni, kynbundinni áreitni og ofbeldi á vinnustöðum. Hún skal vera aðgengileg öllu starfsfólki Þjóðskjalasafns og skal kynnt starfsfólki árlega sem og nýliðum við upphaf starfs.
Markmið
Þjóðskjalasafn Íslands hefur það markmið að stofnunin sé góður vinnustaður og að starfsfólki líði vel í vinnunni. Einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni og ofbeldi er óheimil samkvæmt lögum og líðst ekki hjá Þjóðskjalasafni Íslands. Öll hegðun af því tagi er alvarleg. Hún er brot á starfsskyldum og þá er meðvirkni starfsfólks sem styður við slíka hegðun ekki leyfileg. Öllu starfsfólki Þjóðskjalasafns ber að leggja sitt af mörkum til að koma í veg fyrir einelti, kynferðislega áreitni, kynbundna áreitni, ofbeldi og aðra ótilhlýðilega hegðun.
Viðbragðsáætlun
Fara skal eftir eftirfarandi viðbragðsáætlun í öllum þeim tilvikum þar sem grunur er um að einelti, kynferðisleg áreitni, kynbundin áreitni, ofbeldi eða önnur ótilhlýðileg hegðun eigi sér stað eða hafi átt sér stað á vinnustaðnum. Viðbragðsáætlun skal m.a. virkjuð:
- verði stjórnendur varir við hegðun eða ágreining í samskiptum starfsmanna sem vekur grunsemdir um að slík hegðun sé til staðar á vinnustað,
- berist stjórnendum kvörtun frá starfsmanni um slíka eða aðra ótilhlýðilega hegðun á vinnustað, eða
- berist ábending um að starfsmaður hafi orðið fyrir slíkri eða annarri ótilhlýðilegri hegðun á vinnustaðnum.
Við mat á því hvort viðbragðsáætlun sé virkjuð skiptir ekki máli hvort annar en starfsmaður sé gerandi, t.d. viðskiptamenn. Einnig skiptir það ekki máli hvort atvikið sem um ræðir á sér stað utan vinnustaðar svo lengi sem starfsfólk á hlut að máli.