Þjóðskjalasafn Íslands setti reglur um skjalavörslu afhendingarskyldra aðila árin 2010-2014 skv. 4. gr. laga nr. 66/1985 um Þjóðskjalasafn Íslands. Lög um Þjóðskjalasafn hafa verið felld úr gildi og ný lög nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn tekið við. Reglur settar skv. eldri lögum halda engu að síður gildi sínu. Nýjar reglur Þjóðskjalasafns eru settar með vísan í 1. tl. 8. gr. laga um opinber skjalasöfn. Öllum skjalamyndurum ríkisins, sbr. 1. og 2. mgr. 14. gr. laga um opinber skjalasöfn er skylt að fylgja þessum reglum.
-
Reglur um meðferð, varðveislu og eyðingu á tölvupóstum afhendingarskyldra aðila (nr. 331/2020).
-
Reglur um skráningu mála og málsgagna afhendingarskyldra aðila (nr. 85/2018).
-
Reglur Þjóðskjalasafns Íslands um málalykla afhendingarskyldra aðila (nr. 572/2015).
-
Reglur Þjóðskjalasafns Íslands um skjalavistunaráætlanir afhendingarskyldra aðila (nr. 571/2015).
-
Reglur um tilkynningu, samþykkt og skil á rafrænum gagnasöfnum afhendingarskyldra aðila (nr. 877/2020).
-
Reglur Þjóðskjalasafns Íslands um afhendingu á vörsluútgáfum gagna úr rafrænum gagnakerfum afhendingarskyldra aðila (nr. 100/2014).
-
Reglur Þjóðskjalasafns Íslands um frágang, skráningu og afhendingu pappírsskjala afhendingaskyldra aðila (nr. 573/2015).