Viðbrögð í Þjóðskjalasafni vegna hertra sóttvarnarreglna

laugardagur, 1. ágúst 2020 - 11:45
  • COVID-19 heimsfaraldur.
    COVID-19 heimsfaraldur.

Þjóðskjalasafn Íslands hefur ákveðið að grípa til eftirfarandi aðgerða vegna hertra sóttvarnarreglna stjórnvalda, sbr. auglýsingu nr. 758/2020 um takmörkun á samkomum vegna farsóttar sem tekur gildi á hádegi 31. júlí 2020:

  • Gestir eru minntir á að viðhalda tveggja metra reglunni í öllum samskiptum við starfsfólk Þjóðskjalasafns og gesti.
  • Við inngang, í afgreiðslu og á lestrarsal safnsins er sótthreinsispritt og eru gestir beðnir um að spritta hendur þegar þeir heimsækja safnið.
  • Fjöldatakmörkun verður á lestrarsal og miðað verður við að ekki fleiri en 9 gestir verði þar í einu til að virða tveggja metra regluna.

Leiðbeiningar til gesta:

  • Hámarksfjöldi á lestrarsal eru 9 gestir í einu.
  • Sprittið hendur áður en gengið er inn í lestrarsal.
  • Gerið vart við ykkur í afgreiðslu og farið ekki nær afgreiðslu en sem nemur borða sem er á gólfinu.
  • Starfsmaður úthlutar ykkur sæti og farið ekki nær öðrum gestum en sem nemur tveimur metrum.
  • Starfsmaður afgreiðir ykkur um skjöl sem pöntuð hafa verið á lestrarsal.
  • Fylgið fyrirmælum starfsmanns.