Þjónustukönnun um lestrarsal Þjóðskjalasafns

miðvikudagur, 13. janúar 2021 - 11:30
  • Lestrarsalur Þjóðskjalasafns Íslands.
    Lestrarsalur Þjóðskjalasafns Íslands.

Á síðastliðnu ári stóðu yfir framkvæmdir og endurbætur á lestrarsal Þjóðskjalasafns Íslands við Laugaveg 162. Hinn 15. desember síðastliðinn opnaði lestrarsalur safnsins á nýjan leik og á meðal þeirra breytinga sem voru gerðar var að sameina almenna afgreiðslu og afgreiðslu lestrarsalar. Í tengslum við sameininguna er Þjóðskjalasafn Íslands með breyttan afgreiðslutíma á lestrarsal til skoðunar og liður í þeirri endurskoðun er þjónustukönnun hjá notendum safnsins.

Þeir sem vilja leggja sín lóð á vogarskálarnar og koma ábendingum og athugasemdum á framfæri eru vinsamlegast beðnir um að svara þessari stuttu könnun, sjá meðfylgjandi hlekk. Athygli er vakin á því að þjónustukönnunin er nafnlaus og svör þátttakenda ópersónugreinanleg.

Könnunin verður opin til og með 26. janúar næstkomandi.

Taka þátt í könnun um afgreiðslutíma á lestrarsal Þjóðskjalasafns.