Þjóðskjalasafn Íslands 140 ára

mánudagur, 4. apríl 2022 - 12:00
  • Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður
    Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands og Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður
  • Gestabókin
    Gestabókin
  • Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður
    Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður
  • Hjörleifur Guttormsson.
    Hjörleifur Guttormsson.
  • Ræðumaður Hjörleifur Guttormsson.
    Ræðumaður Hjörleifur Guttormsson.
  • Steinunn Valdís  Óskarsdóttir
    Steinunn Valdís Óskarsdóttir
  • Njörður Sigurðsson og Hjörleifur Guttormsson.
    Njörður Sigurðsson og Hjörleifur Guttormsson.
  • Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands heldur ræðu.
    Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands heldur ræðu.
  • Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður og Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ásamt áhorfendum úr sal.
    Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður og Njörður Sigurðsson aðstoðarþjóðskjalavörður ásamt áhorfendum úr sal.
  • Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands heldur ræðu.
    Guðni Th. Jóhannesson forseti Íslands heldur ræðu.
  • Njörður Sigurðsson aðstoðarÞjóðskjalavörður heldur ræðu.
    Njörður Sigurðsson aðstoðarÞjóðskjalavörður heldur ræðu.
  • Stefna Þjóðskjalasafns Íslands 2022-2027.
    Stefna Þjóðskjalasafns Íslands 2022-2027.
  • Hrefna Róbertsdóttir og Skúli Eggert Þórðarson
    Hrefna Róbertsdóttir og Skúli Eggert Þórðarson
  • Skúli Eggert Þórðarson
    Skúli Eggert Þórðarson
  • Guðni Th. Jóhannesson skráir sig í Hollvinafélagið.
    Guðni Th. Jóhannesson skráir sig í Hollvinafélagið.
  • Hjörleifur Guttormsosn skráir sig í Hollvinafélagið.
    Hjörleifur Guttormsosn skráir sig í Hollvinafélagið.
  • Hrefna Róbertsdóttir, Ólöf Garðarsdóttir, Guðjón Friðriksson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Hjörleifur Guttormsson og Guðni Th. Jóhannesson
    Hrefna Róbertsdóttir, Ólöf Garðarsdóttir, Guðjón Friðriksson, Steinunn Valdís Óskarsdóttir, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Hjörleifur Guttormsson og Guðni Th. Jóhannesson

Þjóðskjalasafn Íslands fagnaði 140 ára afmæli þann 3. apríl og var hátíðardagskrá af því tilefni í dag, 4. apríl. Stofnun Þjóðskjalasafns miðast við auglýsingu landshöfðingja um starfrækslu landsskjalasafns þann 3. apríl 1882. Í upphafi varðveitti safnið skjöl helstu embætta sem rúmuðust á dómkirkjuloftinu í Reykjavík. Nú er það til húsa í nokkrum byggingum að Laugavegi 162 og varðveitir um 46.000 hillumetra af pappírsskjölum um þrjú terabæt af rafrænum gögnum. Safnið gegnir mikilvægu hlutverki sem framkvæmdaaðili opinberrar skjalavörslu og skjalastjórnar og sem opinbert skjalasafn.

Hátíðardagskrá í tilefni afmælisins fór fram í húsakynnum safnsins að Laugavegi 162. Hrefna Róbertsdóttir, þjóðskjalavörður, flutti ávarp í tilefni tímamótanna ásamt Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands og Skúla Eggerti Þórðarsyni, ráðuneytisstjóra, sem flutti ávarp fyrir hönd menningar- og viðskiptaráðherra. Þá voru Hollvinasamtök Þjóðskjalasafns stofnuð formlega stofnuð og ný stefna Þjóðskjalasafns 2022-2027 kynnt. Hollvinasamtökin eru öllum opin og skráning fer fram í gegnum vef Þjóðskjalasafns. Gestum var að lokum boðið upp á léttar veitingar og að skoða sýnishorn af skjölum úr safnkosti Þjóðskjalasafns sem sett hafði verið upp vegna afmælisins.