Samningur um útgáfu á skjölum Yfirréttarins á Íslandi undirritaður

föstudagur, 8. maí 2020 - 12:15
  • Frá undirritun samnings um útgáfu á skjölum Yfirréttarins á Íslandi. F.v. Auður Elva Jónsdóttir fjármála- og rekstrarstjóri Alþingis, Anna Elínborg Gunnarsdóttir sviðsstjóri í Þjóðskjalasafni og Brynhildur Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri Sögufélags.
    Frá undirritun samnings um útgáfu á skjölum Yfirréttarins á Íslandi. F.v. Auður Elva Jónsdóttir fjármála- og rekstrarstjóri Alþingis, Anna Elínborg Gunnarsdóttir sviðsstjóri í Þjóðskjalasafni og Brynhildur Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri Sögufélags.
  • F.v. Auður Elva Jónsdóttir fjármála- og rekstrarstjóri Alþingis, Þorsteinn Magnússon varaskrifstofustjóri Alþingis, Anna Elínborg Gunnarsdóttir sviðsstjóri í Þjóðskjalasafni, Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir skjalavörður og annar ritstjóra verksins, Brynhildur Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri Sögufélags og Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður.
    F.v. Auður Elva Jónsdóttir fjármála- og rekstrarstjóri Alþingis, Þorsteinn Magnússon varaskrifstofustjóri Alþingis, Anna Elínborg Gunnarsdóttir sviðsstjóri í Þjóðskjalasafni, Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir skjalavörður og annar ritstjóra verksins, Brynhildur Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri Sögufélags og Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður.

Samningur milli Alþingis, Þjóðskjalasafns Íslands og Sögufélags var undirritaður í Þjóðskjalasafni 7. maí sl. þar sem handsalað var útgáfuverkefni til tíu ára á dómum og skjölum yfirréttarins á Íslandi og aukalögþinga. Yfirrétturinn var starfandi á Þingvöllum frá 1563-1800. Elstu varðveittu dómsskjölin sem hafa varðveist eru frá árinu 1690.

Yfirrétturinn var hæsta dómstig landsins og var starfandi þar til Alþingi var lagt niður á Þingvöllum árið 1800. Skjöl þessi eru afar merk og grundvallarheimildir um mannlíf og samfélag á Íslandi. Fyrsta bindi verksins kom út árið 2011 þar sem gefin voru út skjöl frá árunum 1690-1710. Skjölin verða gefin út bæði á bók og með rafrænum hætti á vef Þjóðskjalasafns. Næsta bindi kemur út á árinu 2021 og mun innihalda skjöl frá árunum 1711-1730.

Alþingi samþykkti með þingsályktun 18. nóvember 2019 að styrkja útgáfuna í tilefni af aldarafmæli Hæstaréttar Íslands 2020 og fela forseta þingsins að ganga til samstarfs við Þjóðskjalasafn Íslands og Sögufélag um útgáfuna. Samninginn undirrituðu Auður Elva Jónsdóttir fjármála- og rekstrarstjóri fyrir hönd Alþingis, Anna Elínborg Gunnarsdóttir sviðsstjóri fyrir hönd Þjóðskjalasafns og Brynhildur Ingvarsdóttir framkvæmdastjóri Sögufélags. Viðstödd voru einnig Þorsteinn Magnússon aðstoðarskrifstofustjóri Alþingis, Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir sagnfræðingur og annar ritstjóra útgáfunnar.