Samkomubann framlengt

mánudagur, 6. apríl 2020 - 14:30
  • COVID-19 heimsfaraldur.
    COVID-19 heimsfaraldur.

Samkomubann stjórnvalda hefur nú verið framlengt til og með 3. maí nk. Vegna þessa verða takmarkanir á starfsemi Þjóðskjalasafns framlengdar sem því nemur. Eins og áður hefur verið auglýst verða því takmarkanir á starfsemi Þjóðskjalasafns eftirfarandi:

  • Lestrarsalur verður lokaður.
  • Afgreiðsla safnsins verður lokuð.
  • Ekki verður tekið við skjalasöfnum, bæði einkaskjalasöfnum og skjalasöfnum afhendingarskyldra aðila.
  • Skjalaumbúðir verða ekki afgreiddar til viðskiptavina.

Allir fundir með skjalavörðum og sérfræðingum safnsins verða í gegnum síma eða fjarfundabúnað.

Áfram er tekið við fyrirspurnum og erindum í gegnum síma, tölvupóst og bréfpóst og verður afgreiðsla mála á sama hátt eftir því sem við verður komið. Fyrirspurnir og erindi skal senda á upplysingar@skjalasafn.is eða hafa samband í síma 590 3300 milli kl. 09:00 og 14:00 virka daga.