Safnanótt 2019

þriðjudagur, 5. febrúar 2019 - 11:15
  • Safnanótt 2019
    Safnanótt 2019

Reykjavíkurnætur í Þjóðskjalasafni Íslands. Skemmtanalíf í Reykjavík á árunum milli stríða. Fjölbreytt dagskrá í Þjóðskjalasafni. Vernharður Linnet mun fjalla um jass- og dansáratuginn á Hótel Borg. Borgarbandið mun spila lög frá tímabilinu.

Dagskráin hefst klukkan 20:00, en bæði fyrir og eftir formlegu dagskrána verður hægt að fara í kynnisferðir um safnið og skoða ýmis skjöl sem þar eru varðveitt.

Dagskrá

Tími Atriði
18:30 Húsið opnar.
19:00 Vasaljósaferð í skjalageymslur.
20:00-21:00 Brjálaðar nætur. Vernharður Linnet fjallar um breska dans- og jassáratuginn á Hótel Borg. Borgarband Hauks Gröndals spilar þekkt jasslög.
21:10-21:30 Unnar Ingvarsson: „Í ólöglega góðu skapi“. Skemmtanalíf í Reykjavík á árunum milli stríða og vínsöluvandræði Hótel Borgar.
21:40 Vasaljósaferð í skjalageymslur.

Gestum verður boðið upp á ferðir í skjalageymslur okkar. Hámarksfjöldi í hverja ferð er 20 og tekur hver ferð um 40 mínútur.