Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns Íslands 2022 Ráðstefna í tilefni af heildarútgáfu á skjölum Landsnefndarinnar fyrri 1770–1771 15. september kl. 13:30–16.30

fimmtudagur, 1. september 2022 - 11:15
  • Landsnefndin fyrri dagskrá 15. september 2022
    Landsnefndin fyrri dagskrá 15. september 2022
  • Landsnefndin fyrri I-VI bindi
    Landsnefndin fyrri I-VI bindi
  • Landsnefndin fyrri I-VI bindi
    Landsnefndin fyrri I-VI bindi
  • Landsnefndin fyrri I-VI bindi
    Landsnefndin fyrri I-VI bindi

Í tilefni af því að út er komið sjötta og síðasta bindið af heildarsafni skjala Landsnefndarinnar fyrri 1770–1771, verður haldin ráðstefna í Þjóðskjalasafni Íslands, Laugavegi 162, fimmtudaginn þann 15. september n.k. Dagskráin hefst klukkan 13:30 og er áætlað að henni ljúki um 16:30.

Skjöl Landsnefndarinnar gefa einstaka innsýn inn í íslenskt samfélag á seinni hluta 18. aldar. Landsnefndin fyrri var þriggja manna nefnd á vegum konungs sem ferðaðist um Ísland í eitt og hálft ár og safnaði upplýsingum um aðstæður í samfélaginu. Í skjalasafni nefndarinnar eru bréf frá almenningi, prestum, sýslumönnum og öðrum embættismönnum auk greinargerða og margvíslegra gagna frá nefndarmönnum sjálfum. Með þessari útgáfu eru skjölin orðin mun aðgengilegri til rannsókna á sögu átjándu aldarinnar.

Verkefnið var styrkt af Rannís og Augustinusarsjóðnum danska og var unnið í samstarfi Þjóðskjalasafns Íslands, Þjóðskjalasafns Danmerkur og Sögufélags. Ritstjórar útgáfunnar eru Hrefna Róbertsdóttir og Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir.

Allir eru velkomnir. Fjölbreyttir fyrirlestrar byggðir á rannsóknum á skjölum nefndarinnar.

Ráðstefnan verður einnig send út í vefstreymi. Íslensk erindi verða túlkuð yfir á dönsku, og dönsk erindi yfir á íslensku. Skráning í streymið fer fram hér.

Dagskrá

13:30-14:10
  • Anna Agnarsdóttir formaður stjórnarnefndar Þjóðskjalasafns flytur ávarp og opnar ráðstefnuna
  • Hrefna Róbertsdóttir þjóðskjalavörður kynnir heimildaútgáfuna
  • Ole Magnus Mølbak Andersen aðstoðarþjóðskjalavörður flytur kveðju frá Ríkisskjalasafni Danmerkur
  • Kveðja frá Augustinus Fonden í Danmörku
  • Forseti Íslands Guðni Th. Jóhannesson og Adam Grønholm, staðgengill sendiherra Danmerkur á Íslandi fá afhent eintök af ritverkinu
Hlé  
14:20-15:15
  • Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, ritstjóri landsnefndarútgáfunnar – Raunir ritstjórans
  • Pétur Rasmussen, þýðandi – Erindi frá almúganum sem fóru leynt í 245 ár
  • Helgi Skúli Kjartansson, prófessor emeritus – Tilhögun fátækraframfærslu. Lítið dæmi um heimildargildi landsnefndarskjalanna
  • Guðrún Hildur Rosenkjær, sagnfræðingur – Áhrif fjárkláða á ullarvinnu og lífsafkomu Íslendinga á 18. öld
Hlé  
15:30-16:30
  • Christina Folke Ax, safnvörður við Þjóðminjasafn Danmerkur – Bréfritararnir og umheimurinn. Dæmi um „hina“ í landsnefndarskjölunum
  • Kjartan Atli Ísleifsson, sagnfræðingur – Afstaða eyfirskra bænda til landsdrottna í bréfum til Landsnefndarinnar fyrri
  • Kolbeinn Sturla G. Heiðuson, sagnfræðingur – Hagur og efnisleg staða vinnufólks á Norðurlandi
  • Guðmundur Jónsson, prófessor – Forðabúr og fæðuöryggi í bændasamfélagi
16:30
  • Ráðstefnuslit – Móttaka