Ráðstefna um varðveislu og aðgengi að upplýsingum

fimmtudagur, 17. mars 2011 - 14:15
  • Ráðstefna um varðveislu og aðgengi upplýsinga
    Ráðstefna um varðveislu og aðgengi upplýsinga

Föstudaginn 25. mars nk. mun Þjóðskjalasafn Íslands í samstarfi við Félag um skjalastjórn standa fyrir ráðstefnunni Horft til framtíðar - varðveisla og aðgengi upplýsinga. Ráðstefnan verður á Grand hótel í Reykjavík og stendur frá kl. 13-16. Sérstakur gestafyrirlesari verður Kirsten Villadsen Kristmar, sviðsstjóri varðveislu- og grisjunarsviðs Ríkisskjalasafns Danmerkur. Dagskrá ráðstefnunnar er hér fyrir neðan. Upplýsingar um skráningu og ráðstefnugjald má finna á vef Félags um skjalastjórn [síðan sem vísað er til hefur verið fjarlægð af vef Félags um skjalastjórn].

12:30 - 13:00 Móttaka ráðstefnugesta
13:00 - 13:05 Sólveig Magnúsdóttir, formaður Félags um skjalastjórn setur ráðstefnuna
13:05 - 14:05 Kirsten Villadsen Kristmar, sviðsstjóri varðveislu- og grisjunarsviðs Ríkisskjalasafns Danmerkur.
Archives and Record Management - a Danish Perspective“. Fyrirlesturinn er fluttur á ensku
14:05 - 14:45 Unnur Birna Karlsdóttir, skjalavörður á Þjóðskjalasafni Íslands.
Varðveisla og grisjun. Reglur, framkvæmd og framtíðarsýn“.
14:45 - 15:05 Kaffihlé (kaffi og meðlæti innifalið í ráðstefnugjaldi)
15:05 - 15:55 Trausti Fannar Valsson, lektor við lagadeild Háskóla Íslands.
Upplýsingaréttur almennings og skylda stjórnvalda til að varðveita gögn með aðgengilegum hætti“.
15:55 - 16:00 Ráðstefnuslit

Fundarstjóri er Ásdís Paulsdóttir