Nýr vefur Þjóðskjalasafns Íslands opnaður

þriðjudagur, 4. desember 2018 - 13:45
  • Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnar nýja vefinn.
    Lilja Alfreðsdóttir mennta- og menningarmálaráðherra opnar nýja vefinn.
  • Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, dönsku forsætisráðherrahjónin Sólrun Løkke og Lars Løkke Rasmussen, og aðrir gestir skemmta sér hið besta.
    Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra, dönsku forsætisráðherrahjónin Sólrun Løkke og Lars Løkke Rasmussen, og aðrir gestir skemmta sér hið besta.

Mennta- og menningarmálaráðherra, Lilja Dögg Alfreðsdóttir, opnaði nýjan miðlunarvef Þjóðskjalasafns Íslands við hátíðlega athöfn þann 1. desember sl. Hlutverk vefjarins er að safna á einn stað öllum stafrænum heimildum safnsins og leggja notandanum lið við að notfæra sér þær. Það er meðal annars gert með birtingu þeirra í leitarbærum gagnagrunnum og einnig er hægt að nálgast prestsþjónustubækur og sóknarmanntöl frá öllu landinu í landfræðilegri vefsjá kirkjubóka.

Á undanförnum árum hefur verið gert mikið átak í skönnun og ljósmyndun ýmissra skjala, sem varðveitt eru í Þjóðskjalasafni. Það verkefni hefur annars vegar verið unnið af starfsfólki Þjóðskjalasafns og hins vegar í samstarfi milli safnsins og utanaðkomandi aðila. Síðastliðin tvö ár hefur Þjóðskjalasafn átt í góðu samstarfi við bandarísku samtökin Family Search sem sérhæfa sig í birtingu heimilda um ættfræði og persónusögu og hafa yfir að ráða gríðarstórum gagnagrunni um ættfræði og persónusögu frá fjölmörgum löndum. Starfsfólk á vegum Family Search hefur séð um skönnun og ljósmyndun skjala, en starfsfólk Þjóðskjalasafns undirbúið gögnin til skönnunar, séð um skráningu þeirra og birtingu á vef safnsins eftir því sem verkinu vindur fram. Nú þegar hafa öll sóknarmanntöl og prestþjónustubækur verið skannaðar og stór hluti af þeim manntölum sem geymd eru á Þjóðskjalasafni. Þá er hafin skönnun á margvíslegum öðrum skjölum sem geta varpað ljósi á fjölskyldusögu og ættfræði. Má þar nefna dómabækur, skiptabækur, vesturfaraskrár, fermingarskýrslur og legorðsskýrslur.

Þá hafa áður verið skönnuð ýmis gögn er varða eignarhald á jörðum og lýsingu á fasteignum. Þannig eru túnakort, landamerkjaskrár og nokkur fasteignamöt nú aðgengileg á vefnum.

Það er von Þjóðskjalasafns að þessi birting heimilda á vefnum auðveldi almenningi notkun þessara merkilegu heimilda. Á komandi misserum munu bætast við margvíslegar heimildir og jafnframt verður unnið að áframhaldandi þróun á birtingu þeirra.

Auk birtingar skjala eru ýmis rit Þjóðskjalasafns gerð aðgengileg á vefnum, sem og rannsóknir og aðrir vefir, sem safnið stendur að, eða er aðili að. Á stafræna heimildavefnum mun safnið standa að vefsýningum um ýmis efni. Fyrsta vefsýningin um konungsríkið Ísland 1918-1944 hefur nú verið birt. Hún byggir á gögnum úr íslenskum og dönskum skjalasöfnum og er bæði á íslensku og dönsku.