Málstofa um póst- og frímerkjasögu 1. desember á Facebook

fimmtudagur, 19. nóvember 2020 - 12:15
  • Frímerki um landsnefndina 1770-1771
    Frímerki um landsnefndina 1770-1771

Þann 1. desember næstkomandi munu Þjóðskjalasafn, Þjóðminjasafn og Skógasafn standa fyrir málstofu um póst- og frímerkjasögu. Yfirskrift málstofunnar er „Póstmenn koma víða við“ og verða þar flutt þrjú fræðsluerindi. Málstofan verður send út í beinni vefútsendingu á Facebook-síðum safnanna þriggja og hefst hún kl. 11:00.

Málstofan er samvinnuverkefni Þjóðminjasafns, Þjóðskjalasafns og Skógasafns en söfnin fengu í upphafi ársins styrk frá samgöngu- og sveitarstjórnarráðuneytinu til verkefna er varða varðveislu, kynningu og fræðslu sem tengist póst- og frímerkjasögu.

Sjá dagskrá málstofunnar.