Fréttir

föstudagur, 22. desember 2017 - 14:45

Við manntalstöku 24. júní 1703 bjó í Birtingarholti í Ytrahreppi (Hrunamannahreppi), Árnessýslu, Gísli nokkur Þórðarson ásamt sex börnum sínum og vinnukonunni Guðrúnu Pétursdóttur. Hún átti eina dóttur barna, Þorbjörgu Þorláksdóttur. Um aldur hennar segir í manntalinu: „hefur öngva jólanótt“.

Þjóðskjalasafn Íslands óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

hefur öngva jólanótt
miðvikudagur, 31. janúar 2018 - 9:45

Þann 1. febrúar nk. taka gildi nýjar reglur um skráningu mála og málsgagna afhendingarskyldra aðila. Aðdragandi að setningu reglnanna var sá að í desember 2015 auglýsti Þjóðskjalasafn drög að reglum um skráningu mála og skjala til umsagnar.

Þjóðskjalasafn Íslands
þriðjudagur, 30. janúar 2018 - 10:45

Hin árlega Safnanótt, sem er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík, verður haldin föstudaginn 2. febrúar 2018, en þá verða söfn á höfuðborgarsvæðinu með opið hús og kynna starfsemi sína.

Hópur manna samankominn framan við stjórnarráðshúsið þegar fáni Íslands var dreginn að hún á fullveldisdaginn 1. desember 1918

Pages