Hollvinasamtök Þjóðskjalasafns Íslands stofnuð.

mánudagur, 4. apríl 2022 - 12:00
  • Hjörleifur Guttormsson og Steinunn Valdís Óskarsdóttir við stofnun Hollvinasamtaka Þjóðskjalasafns Íslands.
    Hjörleifur Guttormsson og Steinunn Valdís Óskarsdóttir við stofnun Hollvinasamtaka Þjóðskjalasafns Íslands.
  • Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ritar nafn sitt í bók Hollvinasamtaka Þjóðskjalasafns Íslands og gerist þannig fyrsti stofnfélagi þess.
    Guðni Th. Jóhannesson, forseti Íslands, ritar nafn sitt í bók Hollvinasamtaka Þjóðskjalasafns Íslands og gerist þannig fyrsti stofnfélagi þess.

Í tengslum við 140 ára afmæli Þjóðskjalasafns Íslands þann 3. apríl sl. voru stofnuð Hollvinasamtök safnsins.

Tilgangur Hollvinasamtakanna er að treysta tengsl almennings við safnið og auka skilning á mikilvægi varðveislu heimilda um stjórnskipan, stjórnsýslu, borgaraleg réttindi og sögu íslensku þjóðarinnar.

Helstu verkefni sem hin nýstofnuðu samtök munu beita sér fyrir verða m.a. söfnun einkaskjalasafna, tengsl við almenning og ungt fólk, auk þess sem samtökin verða vettvangur fyrir sjálfboðavinnu í þágu safnsins. Þá stefna samtökin að því að standa að upplýsandi viðburðum og fræðslu um málefni tengd safninu.

Hollvinasamtökin eru öllum opin og fer skráning fram í gegnum vefsíðu Þjóðskjalasafns.

Formaður Hollvinasamtakanna er Steinunn Valdís Óskarsdóttir en aðrir í stjórn eru; Guðjón Friðriksson, Jóhanna Gunnlaugsdóttir, Magnús Karel Hannesson og Sigrún Magnúsdóttir.

Hollvinasamtök Þjóðskjalasafns Íslands