Gleðileg jól!

föstudagur, 22. desember 2017 - 14:45
  • ...hefur öngva jólanótt
    ...hefur öngva jólanótt

Við manntalstöku 24. júní 1703 bjó í Birtingarholti í Ytrahreppi (Hrunamannahreppi), Árnessýslu, Gísli nokkur Þórðarson ásamt sex börnum sínum og vinnukonunni Guðrúnu Pétursdóttur. Hún átti eina dóttur barna, Þorbjörgu Þorláksdóttur. Um aldur hennar segir í manntalinu: „hefur öngva jólanótt“.

Þjóðskjalasafn Íslands óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.