Afhendingarbeiðni pappírsskjalasafns á Ísland.is

þriðjudagur, 12. janúar 2021 - 15:15
  • Þjóðskjalasafn Íslands.
    Þjóðskjalasafn Íslands.

Í nóvember á síðasta ári tók Þjóðskjalasafn Íslands í notkun umsóknarkerfi Íslands.is fyrir eyðublöð safnsins. Fyrsta eyðublaðið sem varð að fullu rafrænt var eyðublað fyrir tilkynningar á rafrænum gagnasöfnum afhendingarskyldra aðila. Nú hefur annað eyðublað verið fært yfir í umsóknargátt Íslands.is og er það beiðni um afhendingu pappírsskjalasafns. Allir afhendingarskyldir aðilar til Þjóðskjalasafns þurfa að senda beiðni óski þeir eftir að afhenda pappírsskjöl til safnsins til varanlegrar varðveislu.

Til þess að afhendingarskyldur aðili geti sent inn beiðni um afhendingu pappírsskjalasafns þarf hann að hafa Íslykil. Þá þarf afhendingarskyldur aðili að veita starfsmanni sem sendir inn beiðnina umboð í gegnum vef Ísland.is. Sjá nánari leiðbeiningar um það. Starfsmaður afhendingarskylds aðila skráir sig svo inn á sínum rafrænu skilríkjum og sendir beiðni um afhendingu pappírsskjalasafns í umboði viðkomandi afhendingarskylds aðila.

Beiðni um afhendingu pappírsskjalasafns til Þjóðskjalasafns.