Norræni skjaladagurinn er í dag. Þema dagsins er íþrótta- og æskulýðsstarf. Í tilefni af því og 100 ára afmælis skátahreyfingarinnar helgar Þjóðskjalasafn dagskrá sína skátahreyfingunni og starfsemi hennar. Dagskráin fer fram í skrifstofubyggingu safnsins að Laugavegi 162, 3. hæð.
Norræni skjaladagurinn er á morgun, laugardaginn 10. nóvember. Þá sameinast skjalasöfnin, Þjóðskjalasafn og 20 héraðsskjalasöfn um land allt, um kynningu á starfsemi safnanna. Af því tilefni hefur verið opnaður sérstakur vefur, www.skjaladagur.is.
Skjalasafn SÍS kom í gærkvöldi frá Húsavík með flutningabíl með tengivagni á 60 vörubrettum. Skjalasafnið er um 600 hillumetrar að umfangi eða rúmlega 8.000 skjalaöskjur og vegur um 20 tonn.
Árlegur fundur Þjóðskjalasafns Íslands og héraðsskjalasafna landsins var haldinn í Þjóðskjalasafni 8. október síðastliðinn. Tilgangur slíkra funda er m.a. upplýsingagjöf á milli safnanna auk þess að vera samráðsvettvangur þeirra.
Dagana 4., 6. og 11. september voru haldin námskeið á vegum Þjóðskjalasafns um skjalavörslu afhendingarskyldra aðila sem sérstaklega voru ætluð starfsmönnum ríkisstofnana úti á landi. Námskeiðin voru haldin í Fræðslumiðstöð Vestfjarða á Ísafirði, Háskólanum á Akureyri og í starfsstöð Þekkingarnets Austurlands á Egilsstöðum.
Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur lét af störfum hjá Þjóðskjalasafni Íslands í dag. Unnur hóf störf á skjalasviði safnins 1. júní 2004 og hefur starfað þar síðan. Hún tekur við starfi safnstjóra Minjasafns Austurlands á Egilsstöðum um næstu mánaðamót.
Skjalafréttir er fréttabréf Þjóðskjalasafns sem birtir tilkynningar og fréttir sem tengjast opinberri skjalavörslu, upplýsingar um námskeið og fjölbreyttan fróðleik sem tengist skjalavörslu almennt.
Við hvetjum ykkur til að velja umhverfisvænan ferðamáta þegar þið komið til okkar.
Hjólabogar eru við aðalinnganginn og við lestrarsalinn.
Hlemmur er í 5 mínútna göngufjarlægð og strætisvagnar 2, 5, 14, 15 og 17 stansa fyrir framan.
Heimild mánaðarins
Hver var Karítas Jónsdóttir (1834–1882) sem skildi eftir sig lítinn miða í bréfasafni Jóns Sigurðssonar forseta?
Hluti bréfasafns Jóns Sigurðssonar forseta er geymdur í 16 öskjum á Þjóðskjalasafni. Utan á öftustu örkinni í síðustu öskjunni stendur: „Óraðað bréfarusl“. Þetta eru bréf og fylgiskjöl bréfa þar sem ekki hefur tekist að lesa undirskriftir bréfritara eða bera kennsl á þá. Þar fremst er lítill ódagsettur miði sem er 13,4 cm á breidd og 11,2 cm á hæð.