Reglur um varðveislu og eyðingu skjala úr fjárhagsbókhaldi nr. 1022/2023 hafa verið staðfestar af ráðherra og settar af þjóðskjalaverði. Afhendingarskyldir aðilar skv. 1. og 2. mgr. 14. gr. laga nr. 77/2014 um opinber skjalasöfn hafa því heimild til að eyða slíkum skjölum úr skjalasafni sínu þegar sjö ár eru liðin frá lokum reikningsárs.
Rannsóknadagur Þjóðskjalasafns Íslands 2023 er helgaður þjóðlendurannsóknum. Ráðstefnan verður haldin í Þjóðskjalasafninu að Laugavegi 162, fimmtudaginn 28. september nk. Dagskráin hefst klukkan 13:00 og er áætlað að henni ljúki um kl. 16:00. Þá verður einnig fagnað útgáfu 3. bindis Yfirréttarins á Íslandi.
Á síðustu árum hafa orðið stórstígar framfarir á sviði gervigreindar. Ein birtingarmynd þessarar þróunar er stafrænn lestur handrita og skjala. Þar má nefna austurríska forritið Transkribus sem rekja má til Evrópuverkefnanna TranScriptorium frá árunum 2013-2015 og READ frá 2016-2019.
Á undanförnum árum hefur verið unnið að gerð gagnagrunns sóknarmannatala á vegum Þjóðskjalasafns Íslands. Að mestu leyti hefur það starf farið fram á starfsstöðvum á landsbyggðinni. Á Ísafirði hafa starfsmenn unnið að verkefninu um langt skeið og nú núverið fékkst styrkur frá Byggðastofnun til að ráða starfsfólk á Bakkafirði og Raufarhöfn til verksins.
Afgreiðsla og lestrarsalur Þjóðskjalasafns Íslands verða lokuð um tveggja vikna skeið yfir hásumarið. Lokunin verður frá 24. júlí til og með 4. ágúst 2023. Á meðan lokun stendur verður jafnframt skert þjónusta í Þjóðskjalasafni, s.s. er varðar ráðgjöf til afhendingarskyldra aðila um skjalavörslu og skjalastjórn og fyrirspurnir úr safnkosti Þjóðskjalasafns.
Skjalafréttir er fréttabréf Þjóðskjalasafns sem birtir tilkynningar og fréttir sem tengjast opinberri skjalavörslu, upplýsingar um námskeið og fjölbreyttan fróðleik sem tengist skjalavörslu almennt.
Við hvetjum ykkur til að velja umhverfisvænan ferðamáta þegar þið komið til okkar.
Hjólabogar eru við aðalinnganginn og við lestrarsalinn.
Hlemmur er í 5 mínútna göngufjarlægð og strætisvagnar 2, 5, 14, 15 og 17 stansa fyrir framan.
Heimild mánaðarins
Hver var Karítas Jónsdóttir (1834–1882) sem skildi eftir sig lítinn miða í bréfasafni Jóns Sigurðssonar forseta?
Hluti bréfasafns Jóns Sigurðssonar forseta er geymdur í 16 öskjum á Þjóðskjalasafni. Utan á öftustu örkinni í síðustu öskjunni stendur: „Óraðað bréfarusl“. Þetta eru bréf og fylgiskjöl bréfa þar sem ekki hefur tekist að lesa undirskriftir bréfritara eða bera kennsl á þá. Þar fremst er lítill ódagsettur miði sem er 13,4 cm á breidd og 11,2 cm á hæð.