Eldgos á Safnanótt í Þjóðskjalasafni Íslands 2023

Skýrsla um Kötlugosið 1918

Myndin sýnir skýrslu um Kötlugosið 1918.

Eldgos á Safnanótt í Þjóðskjalasafni Íslands

3. febrúar 2023 Laugavegur 162

 

Þema safnanætur í Þjóðskjalasafni Íslands er „eldgos“ en í ár eru 240 ár frá því að Skaftáreldar hófust, 60 ár frá því að gos í Surtsey byrjaði og 50 ár frá eldgosinu í Heimaey. Sýndar verða heimildir úr safnkostinum um eldgos, fluttir fyrirlestrar um efnið og boðið upp á kynningu um Þjóðskjalasafn og helstu dýrgripi safnsins.

Dagskráin verður eftirfarandi:

18:30 Húsið opnar
18:30 - 22:30 Hægt verður að skoða fjölbreytt skjöl sem tengjast eldgosum
19:00 - 19:30 Kynning á Þjóðskjalasafni og sýning á völdum dýrgripum úr fórum safnsins. Hámarksfjöldi í hóp eru 20 manns og er skráning á staðnum
20:00 - 21:45 Fyrirlestrar:
  • Eldgosið í Vestmannaeyjum 1973, fyrstu dagarnir
    Páll Zóphóníasson, byggingatæknifræðingur, fyrrverandi bæjartæknifræðingur og bæjarstjóri í Vestmannaeyjum
  • „Uppsprettupyttir eldsins.“ Skýrslur um Mývatnselda 1724–1729
    Jóhanna Þ. Guðmundsdóttir, verkefnastjóri heimildaútgáfu í Þjóðskjalasafni.
  • Gleðilog og fagnaðarhróp: eldgos í 19. aldar ljóðlist
    Atli Antonsson, doktorsnemi í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands
  • Séra Jón Steingrímsson og hnattræn áhrif Skaftárelda
    Jón Kristinn Einarsson, sjálfstætt starfandi sagnfræðingur.
21:45 - 22:15 Kynning á Þjóðskjalasafni og sýning á völdum dýrgripum úr fórum safnsins. Hámarksfjöldi í hóp eru 20 manns og er skráning á staðnum

 

Öll Velkomin