Skjalanámskeið á Ísafirði

fimmtudagur, 3. nóvember 2016 - 10:15

Héraðsskjalasafnið á Ísafirði og Þjóðskjalasafn Íslands standa fyrir námskeiði um skjalastjórn og skjalavörslu fimmtudaginn 3. nóvember 2016.

Námskeiðið verður haldið á 4. hæð Stjórnsýsluhússins á Ísafirði.

Dagskráin hefst kl 10:15 og lýkur kl 16:30.

Fjallað verður um eftirfarandi efni:

  • Lagaumhverfi opinberrar skjalastjórnar og skjalavörslu.
  • Skráning mála, málalyklar og málasafn.
  • Grisjun skjala.
  • Rafræn skjalavarsla.
  • Skjalavistunaráætlun.
  • Frágangur, skráning og afhending pappírsskjala.

Kennarar á námskeiðinu verða:

  • Njörður Sigurðsson og Árni Jóhannsson frá Þjóðskjalasafni Íslands.
  • Jóna Símonía Bjarnadóttir frá Héraðsskjalasafninu á Ísafirði.

Verð 12.500 kr (innifalið: kaffiveitingar og léttur hádegisverður).

Þátttakendur skrá sig með því að senda póst á netfangið: jona@isafjordur.is.

Nánari upplýsingar hjá Jónu Símoníu Bjarnadóttur í síma: 450-8228 og 862-9908.