Frágangur, skráning og afhending pappírsskjalasafna

þriðjudagur, 21. október 2014 - 9:00
Heiti námskeiðs Frágangur, skráning og afhending pappírsskjalasafna.
Leiðbeinandi Helga Jóna Eiríksdóttir
Dagsetning 21. október 2014
Tími 09:00-12:00
Staðsetning Þjóðarbókhlaðan, Arngrímsgötu 3 í Reykjavík. Fyrirlestrarsalur á 2. hæð. Athugið ný staðsetning!
Fjöldi 30
Námskeiðsgjald 10.000 kr
Fyrir hverja Skjalastjóra, umsjónarmenn skjalasafna og aðra starfsmenn skjalavörslu hjá stofnunum ríkisins og sveitarfélaga sem eru ekki aðilar að héraðsskjalasafni (Árneshreppur, Eyja- og Miklaholtshreppur, Garðabær, Grindavíkurbær, Grundarfjarðarbær, Hafnarfjarðarkaupstaður, Helgafellssveit, Kaldrananeshreppur, Kjósarhreppur, Reykhólahreppur, Reykjanesbær, Sandgerðisbær, Seltjarnarneskaupstaður, Snæfellsbær, Strandabyggð, Stykkishólmsbær, Sveitarfélagið Álftanes, Sveitarfélagið Garður, Sveitarfélagið Vogar, Tálknafjarðarhreppur, Vesturbyggð).
Námskeiðslýsing Á námskeiðinu verður farið yfir reglur Þjóðskjalasafns Íslands um frágang og skráningu pappírsskjalasafna og leiðbeiningar. Leiðbeint um gerð geymsluskrár og umbúðir sem skal nota undir skjöl. Þá verður einnig fjallað um skjalageymslur og hvað hafa ber í huga við langtímavarðveislu skjala.
Lesefni Lesefni er reglur og leiðbeiningar Þjóðskjalasafns Íslands sem er aðgengilegt á vef safnsins:

Glærur fyrir námskeiðið verða sendar með tölvupósti til þátttakenda skömmu áður en námskeið hefst.

Skráning Smelltu hér til að skrá þig á námskeiðið.