Safnanótt 2013 í Þjóðskjalasafni

fimmtudagur, 7. febrúar 2013 - 11:30
  • Úr skjalageymslum Þjóðskjalasafns.
    Úr skjalageymslum Þjóðskjalasafns.

Á Safnanótt, 8. febrúar 2013, verður dagskrá í Þjóðskjalasafni Íslands, Laugavegi 162, Reykjavík. Boðið verður upp á kynningu á Þjóðskjalasafni og skoðunarferð í skjalageymslur safnsins. Einnig gefst gestum kostur á að hlýða á erindi Benedikts Eyþórssonar sagnfræðings um Sólborgarmálið og erindi Guðnýjar Hallgrímsdóttur doktorsnemi í sagnfræði um Kokkastúlku og kærustu í kaupstað. Hægt er að skoða skjalasýningu, taka þátt í verðlaunagetraun og kíkja í ættfræðiheimildir með aðstoð sérfræðinga safnsins. Skoðaðu dagskrána og skráðu þig í skoðunarferð um skjalageymslur safnsins. Allir eru velkomnir og aðgangur er ókeypis.

Safnanótt er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík sem verður opnuð á Austurvelli fimmtudaginn 7. febrúar klukkan 19:30. Þar verður vídeóverkið PIXEL CLOUD eftir arkitektinn Marcos Zotes afhjúpað og Austurvelli breytt í stórbrotna upplifun ljóss, lita og hreyfingar við tónlist Edda Egilssonar, Cosmos.

Viðamikil dagskrá Vetrarhátíðar stendur svo fram til sunnudags með Safnanótt sem hápunkt á föstudagskvöldið. Alls hefur 41 safn í öllum sex sveitarfélögunum höfuðborgarsvæðisins tilkynnt þátttöku.