Forsíða

Fréttir

fimmtudagur, 1. mars 2018 - 12:45

Þjóðskjalasafn Íslands hefur í um eitt ár haldið úti rás á vefnum YouTube þar sem birt hafa verið ýmis fræðslumyndbönd sem tengjast skjalavörslu á Íslandi.

Myndbandarás Þjóðskjalasafns Íslands á YouTube
þriðjudagur, 27. febrúar 2018 - 9:45

Þjóðskjalasafnið er símasambandslaust sem stendur. Unnið er að viðgerð. Vinsamlegast sendið tölvupóst á upplysingar@skjalasafn.is. Margvíslegar upplýsingar um starfsemi safnsins má finna á þessum vef.

 

Símasambandslaust
mánudagur, 26. febrúar 2018 - 11:15

Símasamband við safnið er komið í lag.

Beðist er velvirðingar á þeim vandkvæðum sem bilunin kann að hafa valdið.

 

Allt í lagi
miðvikudagur, 31. janúar 2018 - 9:45

Þann 1. febrúar nk. taka gildi nýjar reglur um skráningu mála og málsgagna afhendingarskyldra aðila. Aðdragandi að setningu reglnanna var sá að í desember 2015 auglýsti Þjóðskjalasafn drög að reglum um skráningu mála og skjala til umsagnar.

Þjóðskjalasafn Íslands
þriðjudagur, 30. janúar 2018 - 10:45

Hin árlega Safnanótt, sem er hluti af Vetrarhátíð í Reykjavík, verður haldin föstudaginn 2. febrúar 2018, en þá verða söfn á höfuðborgarsvæðinu með opið hús og kynna starfsemi sína.

Hópur manna samankominn framan við stjórnarráðshúsið þegar fáni Íslands var dreginn að hún á fullveldisdaginn 1. desember 1918
föstudagur, 22. desember 2017 - 14:45

Við manntalstöku 24. júní 1703 bjó í Birtingarholti í Ytrahreppi (Hrunamannahreppi), Árnessýslu, Gísli nokkur Þórðarson ásamt sex börnum sínum og vinnukonunni Guðrúnu Pétursdóttur. Hún átti eina dóttur barna, Þorbjörgu Þorláksdóttur. Um aldur hennar segir í manntalinu: „hefur öngva jólanótt“.

Þjóðskjalasafn Íslands óskar öllum landsmönnum gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári.

hefur öngva jólanótt

Pages